Sunnudagur 29. mars, 2026

Fjölskyldutónleikar: ReykjavíkBarokk
        Krakkabarokk í Eldborg


Eldborg

15:00



Mánudagur 30. mars, 2026

Meistaranámskeið í flautuleik
       Darina Ablogina

Fimmund

15:00



Þriðjudagur 31. mars, 2026

Hádegistónleikar

Hörpuhorn

13:00

Barokkbandið Brák og Contoque Ensemble
       Opnunartónleikar

Norðurljós

19:00

Ruby Hughes og Jonas Nordberg
       Í sælu skuggans: Ensk söngljóð frá 16. og 17. öld

Norðurljós

19:00


Miðvikudagur 1. apríl, 2026

Hádegistónleikar

Hörpuhorn

13:00

Low Key Ensemble
      Bassa, meiri bassa!

Norðurljós

17:30

Kyrja á mótum miðalda 
      Josquin des Prez og íslensk þjóðlög 

Norðurljós 

19:00

Herdís Anna, Darina og Peter
      Serenöður í setustofum: Kammertónlist kvenna frá rómantíska tímanum

Norðurljós

20:30



Fimmtudagur 2. apríl, 2026

Dúó Stemma
      Fjölskyldutónleikar

Kaldalón

11:00

Dúó Stemma
     Fjölskyldutónleikar 

Kaldalón

13:00

Christina Pluhar og L'Arpeggiata 
      Alla Napoletana!

Norðurljós

19:00







Krakkabarokk í Eldborg með ReykjavíkBarokk

29. mars, 15:00 - Eldborg


Krakkabarokk í Eldborg eru fjölskyldutónleikar þar sem Kammerhópurinn ReykjavíkBarokk flytur fjölbreytta tónlist frá barokk- og endurreisnartímanum í félagi við tónlistarnemendur og kórsöngvara af höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi. Á tónleikunum má heyra einleik, samleik og kórsöng með undirleik hátíðarhljómsveitar Krakkabarokks – glæsileg samverustund þar sem hinn ríki tónlistararfur fær að blómstra í höndum ungra og efnilegra flytjenda.

Tónlistarhópurinn ReykjavíkBarokk ásamt nemendum Tónskóla Sigursveins, Tónskóla Rangæinga, Tónlistarskóla Hafnarfjarðar, Hólabrekkuskóla, Fellaskóla, Tónlistarskóla Árnesinga, Tónskóla Þjóðkirkjunnar, Hvolsskóla og Drengjakórs Reykjavíkur.

Þessi viðburður er ókeypis.



Hádegistónleikar

31. mars, 13:00 - Hörpuhorn


Fram koma María Konráðsdóttir sópransöngkona, Aina Kalnciema semballeikari og Darina Ablogina flautuleikari.

Þessi viðburður er ókeypis.



Opnunartónleikar: Barokkbandið Brák og Cantoque Ensemble

31. mars, 19:00 - Norðurljós


Verið velkomin á opnunartónleika Reykjavík Early Music Festival árið 2026. Barokkbandið Brák og kórinn Cantoque Ensemble taka höndum saman á ný og flytja verk eftir Avison og Händel í bland við íslensk þjóðlög.
Fyrst hljómar Concerto grosso eftir Englendinginn Charles Avison (1709–1770) sem hann byggði á sónötu fyrir hljómborð eftir Domenico Scarlatti (1685–1757). Þá verður spunnið um íslensk þjóðlög þar sem baðstofan mætir barokkinu. Loks verður flutt tónsetning Georgs Friedrichs Händels (1685–1759) á 110. Davíðssálmi, Dixit Dominus, sem hann samdi liðlega tvítugur þegar hann dvaldi á Ítalíu og varð svo ofurvinsæll meðal þarlendra fyrir verk sín að hann varð nefndur ‘il caro Sassone’ — Þjóðverjinn þokkafulli.


Í sælu skuggans: Ensk söngljóð frá 16. og 17. öld

31. mars, 20:30 - Norðurljós


Sópransöngkonan Ruby Hughes og lútuleikarinn Jonas Nordberg halda til Englands á tímum síðendurreisnar og barokks og flytja söngljóð eftir John Dowland, Henry Purcell og Robert Johnson.

Ást þeirra á stilltum og einkalegum hljóðheimi tónlistar frá öld Elísabetar I. drottningar færði Ruby Hughes og Jonas Nordberg saman. Þau hafa hljóðritað plötu í slíkum anda sem kemur út á vegum BIS-útgáfunnar á fyrstu vikum ársins 2026. Efnisskrá tónleikanna sækja þau á þessa skífu. Einnig hljóma söngljóð eftir nútímatónskáldin Errollyn Wallen og Cheryl Frances-Hoad sem samin eru við kvæði og texta úr leikritum Shakespeares.



Hádegistónleikar

1. apríl, 13:00 - Hörpuhorn


Fram koma Marie Stockmarr Becker og Natalia Duarte víóluleikarar og Sólveig Thoroddsen hörpuleikari.

Þessi viðburður er ókeypis.



Bassa, meiri bassa!
1. apríl, 17:30 - Norðurljós 


Á tónleikum Low Key Ensemble verður haldið í könnunarleiðangur um lendur fylgiraddarinnar, basso continuo. Við beinum sviðsljósinu að djúpum og myrkum hljóðheimi bassahljóðfæra, hins hlédræga hljóðfærahóps sem myndar undirstöður barokktónlistar, og heyrum sjaldgæf verk, oft í útsetningum hópsins sjálfs, fyrir víólu, selló, bassa, lútu og sembal.

Flutt verður ítölsk snemmbarokktónlist eftir Frescobaldi, franskt hábarokk eftir Couperin, Rameau og Boismortier og þýskt eðalbarokk eftir meistara Bach. Við heyrum einmana lútutóna, kraftmikinn sembalslátt, selló í gervi gömbu og víólu í gervi sellós. Ef til vill slæðast nokkrir þjóðlagatónar einnig með. Sama hvað gengur á er mottóið okkar þetta: Meiri bassa!



Kyrja á mótum miðalda: Josquin des Prez og íslensk þjóðlög
1. apríl, 19:00 - Norðurljós

 
Þó að úthaf skilji Ísland og meginland Evrópu að er landið samtengt álfunni í anda og söng og deilir með henni fornum tónlistarrótum. Sönghópurinn Kyrja kannar tónlistarlandslag 15., 16. og 17. aldar á Íslandi og víðar og flytur messuna ‘Ave maris stella’ eftir Josquin des Prez (um 1450–1521). Messan var samin í Róm kringum árið 1490 og er talin eitt helsta meistaraverk fransk-flæmskrar fjölradda tónlistar. Inni á milli messuþátta hljóma íslensk sálmalög og tvísöngur frá 16. og 17. öld, til að mynda Ó Jesú ljúfasti, Lánið drottins lítum mæta og Anda þinn, Guð, mér gefðu víst.



Serenöður í setustofum: Kammertónlist kvenna frá rómantíska tímanum 
1. apríl, 20:30 - Norðurljós 


Herdís Anna Jónasdóttir sópransöngkona, Darina Ablogina flautuleikari og Peter Croton gítarleikari flytja verk frá snemmrómantíska tímanum, sum frumsamin en önnur í umritun fyrir flautu og gítar. Sú hljóðfærasamsetning var vinsæl á sínum tíma því að hún hentaði vel til flutnings í heimahúsum og salonum heldri manna. 

Flytjendur hafa lagst í rannsóknir á þessari tegund tónlistar og leitt fram í dagsljósið framlag þriggja kventónskálda til tónlistarsögunnar, þeirra Mariu Szymanowsku (1789–1831), Emiliu Giuliani-Guglielmi (1813–1850) og Catharinu Josephu Pratten (1824–1895).

Einnig hljóma verk eftir Ferdinando Carulli (1770–1841), Johann Kaspar Mertz (1806–1856), Mauro Giuliani (1781–1829) og Felix Mendelssohn (1809-1847).



Dúó Stemma brokkar fyrir börnin
2. apríl, 11:00 og 13:00 - Kaldalón


Dúó Stemma leikur sér á óhefðbundinn hátt með íslensk þjóðlög frá tímum barokkmeistaranna og spilar á „barokkhljóðfæri“ Íslands, svo sem hrossakjálka, steina og skeljar. Dúóið skipa Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverksleikari, sem hafa í mörg ár skapað skemmtileg og fræðandi tónlistarprógrömm fyrir yngri kynslóðina.
Þau hafa spilað fyrir börn í leik- og grunnskólum víða um land, komið fram í tónlistarhúsum á borð við Hörpu og Hof og spilað fyrir börn í átta löndum víðs egar um Evrópu. Árið 2008 hlaut Dúó Stemma Vorvindaviðurkenningu frá IBBY samtökunum fyrir framlag sitt til barnamenningar á Íslandi.



Alla Napoletana!
2. apríl, 19:00 - Norðurljós

 
Christina Pluhar, einn fremsti túlkandi tónlistar fyrri alda í heimi, kemur með hljómsveit sína L’Arpeggiata á hátíðina Reykjavík Early Music Festival í dymbilviku árið 2026. Hún hyggst bjóða áheyrendum í seiðandi ferðalag um stræti og torg Napólí-borgar í aldanna rás. Á tónleikunum komumst við í tæri við örgeðja óperusöngvara sem ólga eins og Vesúvíus, heyrum söngva um ást og æði og gleymum okkur við trylltar tarantellur. Missið ekki af þessum fágæta tónlistarviðburði.