

REYKJAVÍK EARLY MUSIC FESTIVAL
Alþjóðleg tónlistarhátíð í einstöku umhverfi
Reykjavík Early Music Festival er alþjóðleg barokkhátíð sem haldin er árlega í dymbilviku í Hörpu.
Hátíðin fór fyrst fram í mars árið 2024 og hefur hlotið frábærar viðtökur. Hún hefur sérstöðu í íslensku tónlistarlífi þar sem hún er eina alþjóðlega tónlistarhátíðin á Íslandi sem er helguð upprunaflutningi barokktónlistar. Hátíðin er einstakur vettvangur fyrir samstarf íslenskra og erlendra tónlistarhópa.
Markmið Reykjavík Early Music Festival er að auðga tónlistarlíf og menningu í Reykjavík og skapa alþjóðlegan vettvang fyrir flutning tónlistar fyrri alda. Einnig hefur hún að markmiði að veita tónlistarunnendum andlega næringu óháð efnahag og að skapa tækifæri fyrir unga tónlistarmenn að sækja sér þekkingu og innblástur.
UMSAGNIR

„Þetta voru frábærir tónleikar og ég vona innilega að Reykjavík Early Music-hátíðin eigi eftir að festa rætur um ókomin ár og listrænn stjórnandi hennar, Elfa Rún Kristinsdóttir, á meira en hrós skilið fyrir að koma henni á koppinn.“
Magnús Lyngdal fyrir Morgunblaðið um tónleika Barokkbandsins Brákar og Cantoque Ensemble 2026.
MYNDIR FRÁ HÁTÍÐUM
SAMSTARFSAÐILAR 2027
Við þökkkum samstarfsaðilum okkar að gera Reykjavík Early Musicfestival að veruleika.





















